vesteinn.png

Örn stórbętir sig og setur met


orn.jpg


Örn keppti um helgina á Svæðameistaramótinu hér í Smálöndum í sínum aldursflokki 13 ára stráka.


Örn keppti í 80m grindahlaupi og var fjórði þar á 11.53sek sem er töluvert frá hans betsta. Síðan keppti hann í spjótkasti og kastaði 32.30m, varð annar og bætti sig. Þá var hann einnig númer tvö í kúluvarpi með 10.41m með 3kg kúlu. Hann bætti svo þriðja silfrinu í safnið í sleggjukasti þar sem hann var rétt við sitt besta með 21.35m kasti en kastaði miklu lengra naumlega ógilt. Svo kom kringlan og Örn kastaði heila 46.60m með 600gr kringlu.

Örn bætti sig á Spáni um daginn um tæpa fjóra metra og svo komu fjórir metrar í viðbót í dag. Ekki nóg með það en hann bætti einnig Smálandametið í greininni sem frændi hans Olof (sonur Martins) setti í fyrra.

Það var ánægður Örn sem kom heim frá Kalmar seinnipartinn í dag með fjóra verðlaunapeninga.

Kveðja

Véddi



wit 2012
Powered by AutomatWeb™ - Culture in DatabaseE-Life

All rights reserved