Í júní var síðasti skóladagurinn hjá Erni í 5. bekk og Olgu í 2. Bekk í Högstorps Skola. Það er siður hér að þá safnast allir saman, nemendur, kennarar og annað starfsfólk skólans í skólagarðinum ásamt foreldrum og syngja saman.
Síðan eru veitingar á boðstólnum fyrir alla og svo er farið inn í hvern bekk og hver nemandi fær litla gjöf frá kennurunum fyrir sumarið.
Myndirnar sýna 5. Bekkjarnemendur syngja og er Örn þar með. Og svo eru myndir af Olgu inni í stofunni sinni með kennurunum sýnum.