Jæja, tíminn líður. Í júní var síðasti leikskóladgur Alberts þannig að maður hafði það af fyrir fimmtugsafmælið að hafa ekki krakka lengur á leikskóla. Það er nú sagt frekar í gríni en alvöru þar sem Albert hefur liðið mjög vel á þessum leikskóla.
Eins og hefð var þá var síðasti dagurinn grilldagur og sólin skein og var hátt á lofti þennan dag á undangenginni kuldabylgju með rigningu. Síðan þá er eiginlega búin að vera sól.
Nú fer Albert litli í haust í Högstorps Skola eins og stærri systkinin sem hafa verið þar í tvö ár.